Government Offices of Iceland

08/17/2024 | Press release | Distributed by Public on 08/17/2024 12:53

Utanríkisráðherra heimsótti öryggissvæðið í Keflavík í tengslum við loftrýmisgæslu Bretlands

Flugsveit frá breska flughernum sinnir nú reglubundinni loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðmönnum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti öryggissvæðið í Keflavík í dag, kynnti sér framkvæmd verkefnisins og flutti ásamt Dr. Bryony Mathew sendiherra Bretlands stutt ávarp af því tilefni.

Í ávarpi sínu fór utanríkisráðherra yfir mikilvægi loftrýmisgæslunnar og gott samstarf Íslands og Bretlands, meðal annars á sviði varnarmála. "Íslensk stjórnvöld kunna virkilega að meta framlag Bretlands og annarra þátttökuríkja til þessa verkefnis, sem er mikilvægt fyrir Ísland, en einnig Atlantshafsbandalagið í heild. Það sýnir samstöðu bandalagsríkja og einarðan vilja til þess að verja landsvæði aðildarríkja. Þá má ekki vanmeta fælingarmátt þessa verkefnis sem og annarra samræmdra aðgerða bandalagsins," sagði Þórdís Kolbrún.

Í dag kom einnig til landsins listflugsveit breska flughersins Rauðu örvarnar á leið sinni til Kanada. Rauðu örvarnar hafa áður komið til Íslands, meðal annars árin 2002 og 2008. Sveitin fagnar 60 ára afmæli í ár og heldur næst til Kanada þar sem hún mun standa fyrir listflugsýningum.