10/30/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/30/2024 11:34
Forsetahjón taka á móti Neyðarkallinum 2024 og marka þannig upphaf árlegrar fjáröflunar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Í ár er neyðarkallinn hamfarasérfræðingur, með vísan til þeirra fjölmörgu hamfara sem björgunarsveitir Landsbjargar hafa þurft að bregðast við á undanförnum árum og minna á að við búum í harðbýlu landi.
Átakið hófst fyrst árið 2006 og er því um að ræða 19. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall. Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið.
Sala á Neyðarkalli fer fram fram 30. október. til 3. nóvember 2024 og hægt er að nálgast Neyðarkall hjá sjálfboðaliðum Landsbjargar í helstu verslunarkjörnum sveitarfélaga um allt land.