The President of Iceland

10/29/2024 | Press release | Archived content

Landsliðskokkar á Bessastöðum

Fréttir|29. okt. 2024

Landsliðskokkar á Bessastöðum

Forseti býður til hádegisverðarmóttöku þar sem fulltrúar Íslenska kokkalandsliðsins önnuðust matreiðsluna. Móttakan var í tilefni af Norðurlandaráðsþingi 2024 og sóttu hana um 120 gestir, þar á meðal forsætisráðherrar og þingforsetar Norðurlandanna. Eitt af markmiðum Íslenska kokkalandsliðsins er að vera leiðandi kraftur í að styrkja fagmannlega matreiðslu, auka áhuga ungmenna á matreiðslu og vera fyrirmynd í íslenskri matarhefð. Gestum Bessastaði var boðið upp á smárétti úr íslensku úrvalshráefni í takt við árstíðina og var matseðillinn svohljóðandi:

  • Reykt Klaustursbleikja á smápönnukökum með sýrðum rjóma
  • Fersk hörpuskel úr Ísafjarðardjúpi, piparrótarrjómi og dill
  • Steiktur Vestmannaeyjaþorskur, kartöflumús og skelfisksósa
  • Lambatartar frá Glitstöðum í Borgarfirði með estragon majonesi á flatbrauði og grafinni eggjarauðu
  • Hornfirskt hreindýralifrarfrauð á stökku súrdeigsbrauði, krækiberjahlaup og sultuð krækiber
  • Hægelduð gæsalæri og steiktir shitake sveppir á hrökkbrauði
  • Regnboga gulrætur frá Flúðum með sveppa- og beltisþaragljáa, skessujurtarkremi og stökku byggi frá Vallanesi
  • Möndlukaka með mysukaramellu og jarðarberjum frá Reykholti
  • Hægþurrkaðir tómatar frá Friðheimum, fennel og estragonolía
  • Súkkulaðimús og hafra- og hnetumulningur

Fulltrúar landsliðsins sáu einnig um matreiðsluna í móttöku forsetahjóna á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn, til heiðurs dönsku konungshjónunum í lok ríkisheimsóknar til Danmerkur þann 9. október. Er þetta því í annað sinn sem núverandi forseti efnir til samstarfs við Íslenska kokkalandsliðið með þessum hætti.

Deila