10/27/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/27/2024 09:16
Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til Íslands á morgun. Í heimsókn sinni mun hann funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og taka þátt í fjórða leiðtogafundi Norðurlandanna og Úkraínu.
Selenskí mun einnig ávarpa gesti á þingi Norðurlandaráðs sem hefst í Reykjavík á þriðjudaginn. Þá mun Selenskí einnig eiga fund með forseta Íslands.