Government Offices of Iceland

08/16/2024 | Press release | Distributed by Public on 08/16/2024 11:56

Íslendingar jákvæðir í garð alþjóðastarfs

Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna, eða 90,2 prósent, segja skipta miklu máli að Ísland hafi gott orðspor í alþjóðasamfélaginu. Alls segja 75 prósent hagsæld Íslands byggja að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu og 76,8 prósent segja hagsæld Íslands byggja á alþjóðlegum viðskiptum. Þá telja 74,2 prósent að þátttaka Íslands í alþjóðasamvinnu styrki fullveldi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar skoðanakönnunar sem Maskína gerir fyrir Utanríkisráðuneytið.

Hátt hlutfall landsmanna segist hafa miklar áhyggjur af þróun alþjóðamála, eða 65 prósent, á meðan einungis átta prósent segjast hafa litlar eða engar áhyggjur. Þess má geta að í síðustu könnun sögðust 56 prósent hafa áhyggjur af þróun alþjóðamála. Aftur á móti upplifa 85 prósent landsmanna Ísland sem öruggt land, samanborið við 83 prósent í fyrra, og einungis fjögur prósent upplifa óöryggi. Þá telja 57 prósent að fjölmiðlafrelsi sé mikið á Íslandi, samanborið við 50 prósent í fyrra, og 14 prósent segja fjölmiðlafrelsi lítið hér á landi en hlutfallið var 20 prósent í fyrra.

Stuðningur við Úkraínu áfram hár

Líkt og á síðasta ári var sérstaklega spurt um stuðning Íslands við Úkraínu. Þrátt fyrir að meirihluti landsmanna (75%) sé hlynntur því að Ísland styðji við Úkraínu í stríðinu við Rússland fer stuðningurinn minnkandi á milli ára (var 82% í fyrra). Alls segjast 63 prósent hlynnt því að Ísland veiti Úkraínu efnahagslegan stuðning (var 69% í fyrra) en 30 prósent eru hlynnt því að Ísland veiti Úkraínu beinan hernaðarlegan stuðning, til dæmis með því að greiða fyrir hergögn, flutning á þeim eða þjálfun hermanna, en 48 prósent eru andvíg. Fyrir ári síðan voru 36 prósent hlynnt hernaðarlegum stuðningi en 39 prósent andvíg. Stuðningur við mannúðaraðstoð til Úkraínu er hins vegar sambærilegur á milli ára, 86 prósent segjast hlynnt því að Ísland veiti Úkraínu mannúðaraðstoð samanborið við 87 prósent í fyrra.

Við þetta má bæta að 78 prósent landsmanna eru andvíg því að Ísland eigi í samstarfi við Rússland á alþjóðavettvangi og þegar spurt er með hvaða ríkjum fólk telur að Ísland eigi síst að starfa með á alþjóðavettvangi nefna flest Rússland. Þar á eftir er Ísrael, sem hefur ekki verið nefnt í fyrri könnunum, Kína og Norður-Kórea. Aðspurð með hvaða ríkjum fólk telur að Ísland eigi helst samleið með á alþjóðavettvangi nefna flestir sem fyrr Norðurlöndin; Noreg, Danmörku, Svíþjóð og Finnland.

Í ár var sérstaklega spurt um afstöðu fólks til átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Þannig segja 79 prósent að Ísland eigi að beita sér fyrir því að Ísrael og Hamas virði alþjóðalög og semji um vopnahlé, á meðan níu prósent eru ósammála. Alls segjast 48 prósent landsmanna ósammála því að Ísland styðji rétt Ísraels til sjálfsvarnar innan marka alþjóðalaga á meðan 29 prósent eru sammála. Aftur á móti eru 73 prósent sammála því að Ísland styðji við sjálfstæði Palestínu, þar með talið aðild þeirra að Sameinuðu þjóðunum, en 11 prósent eru ósammála.

Mikill stuðningur við norrænt samstarf

Þegar spurt er um þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi eru Íslendingar sem fyrr jákvæðastir fyrir norrænu samstarfi en alls segjast 91,3 prósent landsmanna jákvæðir gagnvart því að Ísland taki virkan þátt í norrænu samstarfi. Stuðningur almennings við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu er sambærilegur milli ára en 64 prósent segjast jákvæð gagnvart aðild Íslands að bandalaginu samanborið við 63 prósent í fyrra. Það sama má segja um viðhorf almennings til varnarsamstarfs Íslands við Bandaríkin en 53 prósent segjast nú jákvæð gagnvart samstarfinu en hlutfallið var 54 prósent í fyrra. Þá segjast 67 prósent jákvæð gagnvart því að Ísland taki virkan þátt í Norðurskautsráðinu, 58 prósent segjast jákvæð gagnvart aðild Íslands að EES-samningnum og 54 prósent eru jákvæð fyrir þátttöku Íslands í störfum Evrópuráðsins í Strassborg.

Líkt og undanfarin ár mælist stuðningur almennings við þróunarsamvinnu mikill hér á landi. Þannig segja 78 prósent mikilvægt að Ísland veiti þróunarríkjum og íbúum þeirra aðstoð en 20 prósent segja það ekki mikilvægt. Þá segja 63 prósent það vera siðferðislega skyldu Íslands að draga úr fátækt í þróunarríkjum á meðan aðeins 13 prósent eru ósammála þeirri fullyrðingu.

Könnunin fór fram á netinu dagana 31. maí til 11. júní 2024. Svarendur voru 1.033 og voru gögnin vigtuð með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar í samræmi við upplýsingar úr Þjóðskrá. Allar niðurstöður könnunarinnar má nálgast á eftirfarandi hlekk: www.maskina.is/maelabord/utn-allir/