The President of Iceland

10/08/2024 | Press release | Archived content

Handritin heimsótt

Fréttir|08. okt. 2024

Handritin heimsótt

Forsetahjón heimsækja Árnasafn við Kaupmannahafnarháskóla, í fylgd með Friðriki X. Danakonungi og Mary drottningu.

Á safnið komu einnig Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Christina Egelund, mennta- og vísindamálaráðherra Danmerkur, sem undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um gildi handritasafns Árna Magnússonar. Þá kveður yfirlýsingin á um leiðir til að auka þekkingu á handritunum og efla áframhaldandi samstarf og samvinnu landanna um varðveislu þeirra. Viðburðurinn var liður í tveggja daga ríkisheimsókn forseta Íslands til Danmerkur.

Sjá einnig myndasafn frá ríkisheimsókn til Danmerkur.

Fengu að skoða öryggishvelfinguna

Handritasafn Árna Magnússonar er einstakt á heimsvísu og hefur að geyma heimildir sem eru að miklu leyti undirstaða að sögu Íslands og Norðurlandanna. Handritasafnið er varðveitt í tveimur söfnum í tveimur löndum, í Árnasafni í Kaupmannahöfn og á Árnastofnun í Reykjavík. Handritasafnið var í heild sinni sett á sérstakan varðveislulista UNESCO árið 2009 sem kallast Minni heimsins sem undirstrikar mikilvægi þess fyrir heimsbyggðina.

Forsetahjónin og konungshjónin fengu kynningu á safninu og sagði Annette Lassenn rannsóknarprófessor við Árnastofnun viðstöddum frá sagnaarfinum sem þau varðveita. Þá fengu þjóðhöfðingjarnir einnig að skoða öryggishvelfinguna þar sem handritin eru varðveitt.

Á undanförnum árum hafa Ísland og Danmörk unnið að leiðum til þess að gera handritaarfinum hærra undir höfði. Nánar má lesa um efni viljayfirlýsingarinnar á vefsíðu menningar-og viðskiptaráðuneytisins.

Deila