11/01/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/01/2024 08:52
Umtalsverður áhugi er á Umhverfisþingi sem haldið verður í Kaldalóni í Hörpu þriðjudaginn 5. nóvember frá kl. 13-16 og var uppbókað á þátttöku í staðfundi fyrir nokkru.
Þetta er þrettánda Umhverfisþingið sem haldið er, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðar til þingsins samkvæmt ákvæðum þar að lútandi í lögum um náttúruvernd. Umfjöllunarefni þingsins að þessu sinni eru loftslagsmál, aðlögun að loftslagsbreytingum og náttúruvernd.
Þeir sem flytja erindi á þinginu eru:
Dr. Mikael Allan Mikaelsson.Hann hefur starfað sem sérfræðingur á sviði loftslagsstefnumótunar síðastliðin tvö ár hjá StockholmEnvironmentInstitute(SEI) og er einn af helstu höfundum Evrópska loftslagsáhættumatsins sem gefið var út af Umhverfisstofnun Evrópu (EuropeanEnvironmentAgency) fyrr á árinu. Mikael hefur unnið markvisst við greiningar á kerfisbundnum áhrifum loftslagsbreytinga (t.d. þvert á landamæri) og stefnumótun á sviði loftslagsaðlögunar til að sporna við þeim, og hefur hann t.a.m. starfað við greiningar og ráðgjöf um afleiðingar loftslagsbreytinga á aðfangakeðjur og viðskiptalíf fyrir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, UN GlobalCompactWorldEconomicForum. Áður en Mikael hóf störf hjá SEI, starfaði hann í tæpan áratug fyrir bresku utanríkis-, orku- og iðnaðarráðuneytin þar sem hann hafði umsjón með tækni, vísinda- og nýsköpunarsamstarfi tengdu evrópskum loftslagsaðgerðum og hlaut hann MBEorðuna og nafnbótina af hendi bresku krúnunnar fyrir störf sín á sviði loftslagsmála.
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur í loftslagsteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Íslensk stjórnvöld kynntu í sumar uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Áætlunin samanstendur af 92 loftslagsaðgerðum og 58 loftslagstengdum verkefnum, sem er umfangsmikil aukning frá fyrri aðgerðaáætlun. Elín kom til starfa í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu fyrir rétt rúmu ári, en hafði áður unnið nær allan sinn feril sem veðurfræðingur í ýmsum hlutverkum á Veðurstofu Íslands, þar sem hún lagði meðal annars áherslu á vísindamiðlun og fór einnig um tíma með veðurfregnir á RÚV.
Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands. Veðurstofa Íslands vinnur nú að gerð Loftslagsatlass, sem var ein af forgangsaðgerðum stýrihóps sem umhverfis-, orku og loftslagsráðherra skipaði haustið 2022 til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Hildigunnur starfaði áður m.a. sem ChiefTechnicalOfficerhjá Innargi ASí Kaupmannahöfn, framkvæmdastýra rannsókna- og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sem teymisstjóri á jarðvarmasviðií orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Steinar Kaldal, sérfræðingur í náttúruverndarteymi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði eru aðdráttarafl í augum margra ferðamanna og mun Steinar fara yfir jákvæð samfélagsleg áhrif þessara svæða og taka dæmi innanlands og erlendis. Steinar stundaði nám í umhverfisstefnumótun og stjórnun við Lundarháskóla og hefur unnið að náttúruverndar- og friðlýsingarmálum í ráðuneytinu undanfarin ár.
Kristinn Jónassonbæjarstjóri Snæfellsnesbæjar. Kristinn var virkur í baráttunni fyrir stofnun þjóðgarðs á utanverðu Snæfellsnesi, m.a. með vinnu sinni í starfshópi um stofnun þjóðgarðsins. Snæfellsjökulsþjóðgarður var stofnaður árið 2001 til að vernda bæði sérstæða náttúru svæðisins og merkilegar sögulegar minjar. Kristinn hefur verið ötull við að vekja Snæfellsjökulsþjóðgarð til vegs og virðingar og bent á þau tækifæri sem tilkoma þjóðgarðsins hefur falið í sér.
Höskuldur Elefsen, framkvæmdastjóri Dive.issem býður meðal annars upp á köfunar- og snorklferðirí gjána Silfru á Þingvöllum. Höskuldur er viðskiptafræðingur að mennt, hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2010 og þekkir því vel til uppbyggingar áfangastaðarins undanfarin ár.
Þinginu verður streymt á vef Stjórnarráðsins.
Dagskrá og nánari upplýsingar má finna á www.umhverfisthing.is