The President of Iceland

10/04/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/05/2024 12:17

Heiðursverðlaun RIFF

Fréttir|04. okt. 2024

Heiðursverðlaun RIFF

Forseti afhendir heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík - RIFF við hátíðlega athöfn á Bessastöðum að viðstöddu forystufólki í íslenskri kvikmyndagerð, þátttakendum í kvikmyndahátíðinni og aðstandendum hennar. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi listræna sýn í kvikmyndagerð og að þessu sinni komu þau í hlut gríska kvik­mynda­leik­stjór­an­s At­hinu Rachel Tsang­ari.

Hrönn Marinós­dótt­ir stjórn­andi RIFF, flutti ávarp til heiðurs Tsang­ari sem tók að því loknu við verðlaunagripnum úr hendi forseta. Að því loknu var efnt til umræðna sem forseti leiddi. Rætt var um sam­fé­lags­legt mik­il­vægi kvik­mynda­gerðar, framtíð grein­ar­inn­ar al­mennt og hvar Íslend­ing­ar gætu gert betur í þeim geira.

Deila