Government Offices of Iceland

09/06/2024 | Press release | Distributed by Public on 09/06/2024 11:18

Mikilvægt að auka pólitíska umræðu um EES-samstarfið

Þróun innri markaðarins og EES-samningurinn í breyttum heimi var í brennidepli á opnum fundi utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands 3. september síðastliðinn. Frummælendur á fundinum voru Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og höfundur nýlegrar skýrslu um framtíð innri markaðarins, og Line Eldring, formaður nefndar sem nýlega skilaði skýrslu um reynslu Noregs af EES-samstarfinu.

Í opnunarávarpi sínu vék Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra orðum sínum að þróun alþjóðamála þar sem grunngildi vestrænna samfélaga eigi í vök að verjast samhliða aukinni verndarhyggju í viðskiptum. Evrópusambandið hafi gripið til ýmissa aðgerða vegna þessa til að auka efnahagslegt öryggi sitt og meiri áhersla sé nú lögð á aukna samkeppnishæfni. Viðnámsþróttur hvers samfélags sé fyrsta varnarlínan og huga þurfi að því hvaða þýðingu þessi þróun hafi fyrir lítið hagkerfi eins og Ísland sem eigi mikið undir útflutningi og opnum mörkuðum. Íslendingar þurfi að móta sér skoðun á þessari þróun og hvernig bregðast skuli við henni, bæði sjálfstætt sem og innan EES. Mikilvægt sé að aðgerðir ESB leiði ekki til viðskiptahindrana og gliðnunar á innri markaði EES.

Í pallborðsumræðum lagði utanríkisráðherra jafnframt áherslu á pólitíska umræðu um EES-samninginn. Tilhneiging væri til þess að horfa á samninginn eingöngu sem viðskiptasamning, en hann sé annað og meira og grundvöllur margvíslegs samstarfs náinna bandalagsríkja sem byggja þjóðfélög sín á sömu grundvallargildum. Breið samstaða sé meðal landsmanna um þátttöku í EES-samstarfinu.

Fyrr um daginn áttu utanríkisráðherra og Enrico Letta fund með Samtökum atvinnulífsins til að ræða sýn fyrirtækja á innri markaðinn og þróun hans. Þá áttu Letta og Eldring sömuleiðis fundi með forsætisráðherra og fulltrúum úr utanríkismálanefnd og Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA.

Í ár eru 30 ár liðin frá því að EES-samningurinn tók gildi. Afmælisárið hefur meðal annars verið nýtt til að efla umræðu um samstarfið.

Upptaka frá fundinum er aðgengileg hér.