Government Offices of Iceland

11/21/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/21/2024 07:24

Vika helguð vitundarvakningu um sýklalyf

Dagurinn 18. nóvember er sérstaklega helgaður vitundarvakningu um sýklalyf hjá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC). Sama dag hefst vitundarvika um skynsamlega notkun sýklalyfja á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Tilgangurinn er að minna almenning, stjórnvöld og heilbrigðisstarfsmenn á þá ógn sem stafar af útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería í heiminum.

Mánudaginn 18. nóvember hélt sóttvarnalæknir árlegt málþing um sýklalyfjaónæmi í tilefni vitundarvakningar. Málþingið var vel sótt en það var haldið á Landspítalanum í Fossvogi að þessu sinni og var aðgengilegt í streymi. Erindin fjölluðu um sýklalyfjanotkun, vaxandi útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og mikilvægi sýkingavarna til þess að sporna gegn þessari þróun en einnig um sýklalyfjagæslu og sýklalyfjaskort. Á málþinginu var tákn sýklalyfjaónæmis kynnt en evrópska samstarfsverkefnið EU-JAMRAI stóð fyrir hönnun þess. Meðfylgjandi eru myndir af málþinginu og af fyrirlesurum og gestum sem stilltu sér upp með táknið.

Heilbrigðisráðherra stillti sér upp fyrir myndatöku með tákn sýklalyfjaónæmis ásamt sóttvarnalækni en heilbrigðisráðuneytið gaf nýlega út aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi ásamt matvælaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Heilbrigðisráðuneytið tekur einnig virkan þátt í EU-JAMRAI-2 verkefninu en þar taka þrjátíu ESB/EES lönd saman höndum til þess að vinna að aðgerðum gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.