The President of Iceland

07/06/2024 | Press release | Archived content

Landsmót hestamanna

Fréttir|06. júlí 2024

Landsmót hestamanna

Forseti flytur ávarp á Landsmóti hestamanna sem haldið er í Víðidal í Reykjavík. Í máli sínu minnti forseti á mikilvægi þarfasta þjónsins í sögu þjóðarinnar og ekki síður í landkynningu síðustu áratugi. Þá þakkaði forseti hestamönnum ljúfa viðkynningu í embættistíð hans. Þá afhenti forseti heiðursviðurkenningu Félags hrossabænda. Hana hlaut Þorvaldur Árnason, doktor í erfðafræði, sem er höfundur útreikninga á kynbótamati íslenska hestsins.

Forseti afhenti einnig Sleipnisbikarinn ásamt Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands, og Nönnu Jónsdóttur, formanni deildar hrossabænda. Stóðhesturinn Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum hlaut bikarinn. Loks afhenti forseti verðlaun í A-úrslitum tölts, ásamt Sigurbirni Bárðarsyni, Guðna Halldórssyni, formanni Landssambands hestamannafélaga, Hirti Bergstað, formanni Fáks, Jónínu Björk Vilhjálmsdóttur, formanni Spretts,

Deila