09/17/2024 | Press release | Archived content
Forseti ræðir við konur í íslenskum sjávarútvegi á viðburði þeirra í Grósku í Reykjavík. Forseti átti samtal við Birnu Einarsdóttur, sem situr í ráðgjafaráði Félags kvenna í sjávarútvegi. Félagið var stofnað árið 2013 með því markmiði að styrkja og efla konur í greinum tengdum sjávarútvegi með samstöðu og hjálpsemi að leiðarljósi. Félagar þess nú 345 talsins. Árlega er haldinn viðburður í tengslum við aðalfund félagsins þar sem efnt er til samtals við konur sem skarað hafa fram úr á sínu sviði.