Government Offices of Iceland

08/19/2024 | Press release | Distributed by Public on 08/19/2024 11:21

Aukinn stuðningur við Bjarkarhlíð vegna mansalsverkefna

Bjarkarhlíð hefur hlotið 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali. Samtökin hafa síðastliðin ár haft umsjón með framkvæmdateymi um mansalsmál samkvæmt samkomulagi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið en í ljósi aukinna verkefna í Bjarkarhlíð og aukinnar áherslu stjórnvalda á aðgerðir gegn mansali var ákveðið að veita Bjarkarhlíð styrk sem gerir samtökunum kleift að ráða starfsmann í fullt stöðugildi í tvö ár til þess að sinna mansalsverkefnum. Umfang slíkra verkefna í Bjarkarhlíð hefur aukist verulega síðustu misseri og gert er ráð fyrir að svo verði áfram.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitir Bjarkarhlíð 18 milljónir króna og dómsmálaráðuneytið 10 milljónir króna. Meginhlutverk Bjarkarhlíðar hvað varðar mansmalsmál er að samhæfa störf og fyrstu viðbrögð þeirra aðila sem koma að velferðarþjónustu til þolenda mansals eða þegar grunur er um slíkt. Samkvæmt samkomulaginu verður lögð áhersla á að móta og samræma almennt verklag þegar kemur að þjónustu við þolendur mansals. Einnig verður lögð áhersla á að kynna hlutverk Bjarkarhlíðar varðandi mansalsmál um land allt og auka þekkingu viðeigandi aðila á helstu birtingarmyndum og eðli mansals. Þá verður leitað leiða til þess að reyna að ná betur til þolenda vændismansals.

Við vinnuna fram undan verður horft til athugasemda sem fram komu í síðustu skýrslu GRETA (eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali) um stöðu Íslands.

Tekið á mansalsmálum af festu

"Brýnt er að taka á mansalsmálum með samræmdum hætti og af festu. Styrkurinn til Bjarkarhlíðar skiptir hér miklu máli. Nýleg dæmi sýna hve mikilvægt er að grípa þolendur um leið og mál koma upp og veita þeim viðeigandi þjónustu. Þau sýna líka hversu dýrmæt reynsla hefur byggst upp í Bjarkarhlíð í mansalsmálum síðastliðin ár," segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

"Bjarkarhlíð hefur sinnt mikilvægu hlutverki við meðferð mansalsmála undanfarin ár. Dómsmálaráðuneytið hefur með þessu samkomulagi í dag lagt lóð á vogarskálarnar til að Bjarkarhlíð geti áfram sinnt þessu mikilvæga hlutverki og mætt auknum málafjölda.
Hrundið hefur verið af stað vinnu við nýja aðgerðaáætlun til að mæta okkar alþjóðlegu skuldbindingum. Þá hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar aukið samstarf ráðuneyta í málaflokknum. Gott samstarf og samvinnu þarf til í baráttunni gegn mansali. Það er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali og mikilvægt að sofna ekki á verðinum," segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra.

"Á síðasta tímabili mansalsverkefnis í Bjarkarhlíð komu upp 78 mál þar sem grunur var um mansal og komu þolendur frá 12 mismunandi löndum. Mansalsteymi Bjarkarhlíðar hefur haft það hlutverk að kalla saman viðbragðsaðila sem starfa í þágu þolenda í þverfaglegu samstarfi við þær stofnanir sem þurfa að koma að málum. Mikil þekking hefur skapast innan mansalsteymisins undanfarin misseri og hefur það haft veg og vanda að því að efla traust á milli stofnana og einstaklinga sem starfa í málaflokknum.
Með þessu framlagi munum við ná enn betri árangri í að vinna að heildstæðri nálgun og úrræðum sem verða sérsniðin að þolendum mansals ásamt því að vinna að stefnumótun í þessum mikilvæga málaflokki," segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar.

Samkvæmt þriðju úttektarskýrslu GRETA sem birt var í fyrra voru íslensk stjórnvöld meðal annars hvött til að þróa frekar og styrkja aðstoð til þolenda mansals. Samningurinn við Bjarkarhlíð er liður í því. Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dómsmálaráðuneytis, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.