Government Offices of Iceland

10/03/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/03/2024 06:15

Ísland og Filippseyjar höfðu pólitískt samráð í New York

Efnt var til pólitísks samráðs milli Íslands og Filippseyja þann 27. september sl. í tengslum við nýafstaðna ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, fundaði þá með Theresu P. Lazaro, skrifstofustjóra málefna tvíhliða mála, í utanríkisráðuneyti Filippseyja þar í borg.

Var samráðið haft á grundvelli samkomulags sem gert var fyrr á þessu ári, um reglubundið pólitískt samráð ríkjanna. Meðal umræðuefna var tvíhliða samband ríkjanna, en töluverður fjöldi Filippseyinga er búsettur á Íslandi, eða hátt í 2.700 manns, og starfar einkum í heilbrigðisgeiranum. Var jákvætt framlag þeirra til íslensks samfélags undirstrikað á fundinum.

Ennfremur var rætt um fríverslunarsamning EFTA við Filippseyjar, sem Ísland á aðild að, fjárfestingar og viðskipti milli ríkjanna og áhuga íslenskra stjórnvalda á tvísköttunar- og fjárfestingasamningi við Filippseyjar. Sömuleiðis hvort auðvelda megi útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Filippseyja, sem er mikilvægt hagsmunamál eðli málsins samkvæmt, og mögulegt samstarf ríkjanna á sviði vísinda og orkumála.