Government Offices of Iceland

08/28/2024 | Press release | Distributed by Public on 08/28/2024 07:16

Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu haustið 2024

Frá því að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið tók til starfa snemma árs 2022 hefur ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, staðsett skrifstofu sína víðs vegar um landið. Málefni ráðuneytisins eiga við um landið allt og því býður ráðherra öll áhugasöm velkomin í opna viðtalstíma á hverri starfsstöð þar sem gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði ráðherra. Fyrir utan dagleg verkefni eru fyrirtækjaheimsóknir í fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir á hverju svæði einnig hluti af dagskrá ráðherra.

Í haust mun ráðherra starfa frá eftirfarandi stöðum. Athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar á dagskrá ráðherra.

  • Dalvíkurbyggð - 19. ágúst 2024
  • Hveragerði - 2. september 2024
  • Rangárþing ytra - 9. september 2024
  • Stykkishólmur - dagsetning birt síðar
  • Vopnafjörður - dagsetning birt síðar

"Tækifærin leynast um land allt og með þessum hætti fæ ég enn betri innsýn í þau verkefni sem tengjast mínu ráðuneyti. Svo megum við sem búum á höfuðborgarsvæðinu ekki gleyma því að það er jafn langt fyrir okkur að sækja landsbyggðina heim og það er fyrir þau að koma til höfuðborgarinnnar," segir Áslaug Arna.

Störf óháð staðsetningu

Frá upphafi hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu og eru störf ráðherra þar engin undantekning. Í þessu felst að starfsemi ráðuneytisins er ekki bundin við aðalstarfsstöð þess í Reykjavík. Með því að staðsetja skrifstofu ráðherra víðs vegar um landið gefst mikilvægt tækifæri til aukinnar tengslamyndunar og samstarfs við háskóla, stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga um land allt.

Á kjörtímabilinu hefur skrifstofa ráðherra og opnir viðtalstímar farið fram á yfir 20 stöðum víðs vegar um landið líkt og sjá má á kortinu hér fyrir neðan.