Nyi Landsbanki Islands hf.

02/08/2024 | Press release | Distributed by Public on 02/08/2024 11:04

Útibúið í Eyjum lokar á hádegi föstudag; öll útibú lokuð á frídegi verslunarmanna

Vegna Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum lokar útibú Landsbankans í Eyjum klukkan 12 á hádegi í dag, föstudaginn 2. ágúst.

Öll útibú bankans verða lokuð á frídegi verslunarmanna mánudaginn 5. ágúst.

Við minnum á að viðskiptavinir bankans geta sinnt bankaviðskiptum hvar og hvenær sem er í Landsbankaappinu eða í netbankanum.

Nánari upplýsingar um útibúanet Landsbankans, app bankans, hraðbanka og netbanka má finna hér á vefnum.