The President of Iceland

11/01/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/01/2024 07:55

Samúð til Spánar

Fréttir|01. nóv. 2024

Samúð til Spánar

Forseti sendir Filippusi VI. Spánarkonungi samúðarkveðju vegna hamfaraflóða í Valensía-héraði í suðausturhluta Spánar, sem orðið hafa hátt á annað hundrað manns að fjörtjóni. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu vegna flóðanna sem sögð eru þau mestu á Spáni í áratugi.

Í bréfinu vottar forseti Spánverjum samúð og segir hug íslensku þjóðarinnar vera hjá aðstandendum hinna látnu og öðrum sem eigi um sárt að binda. Fjöldi Íslendinga sé búsettur á Spáni og deili hinni miklu sorg með spænsku þjóðinni, eins og aðrir Íslendingar.

Deila