The President of Iceland

10/09/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/10/2024 12:43

Síðari dagur Danmerkurheimsóknar

Fréttir|09. okt. 2024

Síðari dagur Danmerkurheimsóknar

Forsetahjón halda áfram opinberri heimsókn sinni til Danmerkur. Á síðari degi heimsóknarinnar var megináhersla dagskrárinnar á eflingu núverandi viðskiptatengsla Danmerkur og Íslands, aukið samstarf um orkumál og sameiginlega hagsmuni við að mæta loftslags- og sjálfbærnimarkmiðum þjóða.

Um fyrri dag heimsóknarinnar má lesa hér: Konunglegar móttökur
Sjá einnig myndasafn: Ríkisheimsókn til Danmerkur

Viðskiptaþing, háskólanemar og hringborðsumræður

Síðari heimsóknardagurinn hófst með heimsókn til State of Green og Dansk Industri, systurfélaga Grænvangs og Samtaka iðnaðarins á Íslandi. Þar var efnt til Dansk-íslensks viðskiptaþings þar sem fjallað var um tækifæri til frekara samstarfs þjóðanna sem báðar standa framarlega við nýtingu endurnýjanlegrar orku og nýsköpunar á sviði loftslagslausna. Forseti og Danakonungur ávarpuðu bæði þingið.

Næst á dagskrá miðvikudagsins var heimsókn forsetahjóna í danska viðskiptaháskólann, Copenhagen Business School (CBS). Á annað hundrað Íslendinga er við nám í skólanum, auk þess sem þar starfa íslenskir fræðimenn sem forsetahjón hittu að máli. Þá var efnt til viðburðar fyrir nemendur skólans, þar sem dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, flutti erindi. Að því loknu átti forseti eiga opið samtal við rektor CBS, Peter Møllgard, og svaraði spurningum nemenda úr sal.

Síðdegis var konungi og forseta boðið í sendiherrabústað Íslands í Kaupmannahöfn þar sem þau tóku þátt í hringborðsumræðum um orku-og loftslagsmál með fulltrúum úr íslensku og dönsku viðskiptalífi, auk utanríkisráðherra Íslands og borgar- og sveitastjórnarráðherra Danmerkur sem jafnframt er ráðherra norræns samstarfs.

Móttaka til heiðurs konungshjónum

Um kvöldið buðu forsetahjón til móttöku á Norðurbryggju til heiðurs dönsku konungshjónunum. Í móttökunni reiddi íslenska kokkalandsliðið fram smárétti úr íslensku hráefni auk þess sem boðið var upp á íslenskan bjór frá ölgerðinni. Sigurður Flosason tónlistarmaður lék tónlist og Ari Eldjárn grínisti skemmti gestum. Með móttökunni lauk formlegri dagskrá ríkisheimsóknarinnar.

Deila